Aldursflokkamót í frjálsum

Dagsetning birtingar: 27.8.2013 00:02:26

Ágætu félagar,

UMSE býður til frjálsíþróttamóts á Þórsvelli á Akureyri, 3.,4. og 5. september. Mótið er opið öllum, en einnig keppa aðildarfélög UMSE til stiga á mótinu. Mótið hefst kl. 17:00 alla daganna.

Opið er fyrir skráningu á mótaforriti FRÍ mot.fri.is

Fylgist með á síðu frjálsíþrótta hjá UMSE frjalsar.umse.is

Hlökkum til að sjá ykkur öll á einu af síðustu mótum sumarsins.