Hin árlega þrettándabrenna var haldin föstudagskvöldið 9. janúar 2026 við Tunguréttina. Viku áður var með öllu snjólaust á svæðinu og því var brennunefnd nokkuð uggandi varðandi hættu á gróðureldum - en sem betur fer kom sýnishorn af vetri kringum þrettándann og þar af leiðandi var óhætt að kveikja í.
Fjöldi fólks sótti brennuna og fylgdist með flugeldaskothríð í góðu veðri.