Síðasta sprikl vetrarins var spriklað á Rimum þriðjudagskvöldið 5. maí. Farið var í leiki í salnum áður en spriklarar gæddu sér á veitingum sem þeir komu með sjálfir. Síðan var endað með sjóðheitu gufubaði.
Mætingin þennan veturinn hefur verið góð, að jafnaði hafa um 10 spriklarar mætt og spriklað undir stjórn Jónu Heiðu.
Að óbreyttu hefst spriklið á ný um miðjan október.