Af heimasíðu UMSE:
Knattspyrnumót UMSE fór fram á Hrafnagili fimmtudaginn 3. september.
Mótið gekk vel og um 120 krakkar frá fimm félögum sóttu mótið.
Þrátt fyrir að veðrið hafi ekki leikið við keppendur í þetta skiptið þá skemmtu sér allir vel. Markmiðið með mótinu er að veita iðkendum minni félaga tækifæri til þess að etja kappi undir merkjum síns félags og skemmta sér við knattspyrnuiðkun.
Lið frá Magna Grenivík, Umf. Æskunni, Umf. Smáranum, Umf. Samherjum og Umf. Þorsteini Svörfuði tóku þátt að þessu sinni.
_ _ _
Meðfylgjandi er mynd af þátttakendum frá Umf. Þorsteini Svörfuði en félagið sendi tvö lið til leiks (eldra og yngra). Og venju samkvæmt voru liðsmenn Umf. Þorsteins Svörfuðar í flottustu búningunum.