Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður hefur tekið þann pól í hæðina að reyna að viðhalda hinu gamalgróna spili Brús. Tvisvar á ári hefur verið blásið til brúsmóts á Rimum, annars vegar á afmælisdegi ungmennafélagsins 27. desember og hins vegar þegar svarfdælskur mars er stiginn í mars eða apríl ár hvert. Þá fer fram heimsmeistaramót og sigurlaunin eru hinn svokallaði Gullkambur.
Heimsmeistaramótið fór einmitt fram þann 17. apríl síðastliðinn. Kvöldið áður hafði ungmennafélagið staðið fyrir æfinga- og kennslukvöldi á Rimum þar sem öllum áhugasömum var frjálst að mæta og rifja upp eða læra Brús. Það voru nokkrir sem nýttu sér það og mættu einhverjir þeirra tvíefldir til leiks á sjálft heimsmeistaramótið. Spilað var á sjö borðum og hart barist um Gullkambinn en þess má geta að á heimsmeistaramótinu í fyrra var aðeins spilað á fjórum borðum og á sex borðum um síðustu jól. Stjórn ungmennafélagsins dregur þ.a.l. þá ályktun að áhuginn sé frekar að aukast og þar af leiðandi er stefnt á áframhaldandi mótahald.
Á heimsmeistaramótinu að þessu sinni bar svo við að enginn Sveinbjarnarson náði verðlaunasæti, sem má tíðindum sæta í ljósi ótrúlegrar sigurgöngu á síðustu mótum. Það voru hinir svarfdælsku Ásar (Gunnsteinn Þorgilsson og Zophonías Jónmundsson) sem stóðu uppi sem sigurvegarar með 87 stig. Liðið Grís og galdra Villi (Gunnhildur Gylfadóttir og Guðrún Ingvadóttir) náði öðru sæti með 85 stig og liðið Smyrillinn (Dagur Ýmir Sveinsson og Jörvi Blær Traustason) endaði í þriðja sæti með 74 stig. Klaufabárðarnir (Jón Steinar Árnason og Daði Mar Flosason) voru klóraðir oftast, eða þrisvar sinnum og fengu þeir sérstaka viðurkenningu fyrir það.