Skipulögðum knattspyrnuæfingum á Glæsivelli við Rima er lokið þetta sumarið. Frá því snemma í júní hafa krakkar 14 ára og yngri mætt á Rima öll miðvikudagskvöld og spilað knattspyrnu sér til gamans. Einar Hafliðason hefur haft umsjón með æfingunum. Síðasta æfingin fór fram þriðjudagskvöldið 1. september og var venju samkvæmt slúttað með hamborgurum Friðriks og Sólu í Jörfatúni.
Einnig hefur hópur eldri iðkenda mætt reglulega á völlinn í sumar og spilað fótbolta.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá síðustu æfingu sumarsins.