Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður hélt aðalfund sinn að Rimum að kveldi föstudagsins 10. apríl. Mæting á fundinn var nokkru betri en árið á undan enda þurfti ekki mikið til. Að vanda var ýmislegt til umræðu á fundinum en sérstaklega voru fundarmenn þó áhyggjufullir yfir því hvað myndi gerast á aðalfundinum að ári þegar engar Tommupítsur yrðu á boðstólnum. Litaðist öll umræða fundarins af þessum áhyggjum. Var ákveðið að panta ríflegt magn af veitingum sem þó myndu trúlega ekki endast fram að næsta aðalfundi. Er Tommunni þakkað fyrir framlag sitt til aðalfunda Umf. Þ.Sv. gegnum árin.
Kosið var um þá Jón Bjarka Hjálmarsson og Eið Smára Árnason í stjórn. Báðir gáfu þeir kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetur og báðir voru þeir endurkjörnir með lófataki.
Stjórn félagsins skipa: Jón Bjarki Hjálmarsson (formaður), Einar Hafliðason (gjaldkeri), Jónína Heiðveig Gunnlaugsdóttir (ritari), Friðrik Arnarson (meðstjórnandi) og Eiður Smári Árnason (meðstjórnandi).
Haldið var í hefðir og nokkrir fjarstaddir félagsmenn valdir í íþróttanefnd, sjoppunefnd og brennunefnd félagsins.
Að venju var rætt um fyrirkomulag þrettándabrennu, ástand knattspyrnuvallar og afmælisritið góða (sem er nú nánast tilbúið!) Þá var einnig rætt um hugsanlega aðkomu ungmennafélagsins að lagfæringum á Sundskála Svarfdæla og hvernig hefja mætti hann að nýju til vegs og virðingar. Sundskálinn verður 100 ára gamall árið 1929.
Eftir uppbyggilegar umræður og ýmis önnur mál þakkaði Jón Bjarki formaður fyrir og sleit fundinum.