Brúsmót 27. desember á Rimum

Dagsetning birtingar: 20.12.2015 23:37:09

Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður heldur sitt árlega brúsmót á Rimum sunnudagskvöldið 27. desember næstkomandi kl. 20:30.

Spilað verður eftir atbrúsreglum eins og á heimsmeistarmótinu.

Mótsgjald er 500 kr. á mann, ekki posi á staðnum.

Allir velkomnir!