Ferðastyrkir einstaklinga og hópa, umsóknarfrestur til 30. sept

Dagsetning birtingar: 10.9.2015 09:17:32

Stjórn UMSE auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki til íþróttafólks. Styrkjunum er úthlutað eftir vinnureglum sem stjórn UMSE setur og miðast upphæð styrkjanna við samþykkta fjárhagsáætlun hverju sinni.

Hver einstaklingur getur einungis fengið einn styrk á hverju ári. Íþróttafólk getur sótt sjálft um styrkinn til stjórnar, en umsóknina þarf að staðfesta af forráðamanni íþróttafélagsins. Einnig geta aðildarfélög sótt um styrki fyrir hönd iðkenda. Úthlutað er tvisar á ári, í júní og október. Umsóknarfrestur er til 31. maí og 30. september.

Umsóknum þarf að skila til skrifstofu UMSE á þar til gerðum umsóknareyðublöðum.

Nánar um styrkina og vinnureglur um þær er að finna á hér á vefsíðu UMSEwww.umse.is/styrkir. Þar er einnig að finna umsóknareyðublöð.

Nánari upplýsingar gefur skrifstofa UMSE.