Fréttir af aðalfundi Umf. Þ.Sv.

Dagsetning birtingar: 3.4.2015 09:17:20

Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður hélt 94. aðalfund sinn miðvikudagskvöldið 1. apríl að Rimum. Mæting stjórnarmanna var mjög góð en mæting almennra félagsmanna var allt að því bágborin. Ýmis mál voru til umfjöllunar á fundinum eins og yfirleitt. Skýrsla stjórnar og ársreikningar voru samþykktir eftir nokkrar umræður og eina ferð til Dalvíkur eftir veitingum. Kosið var um þrjá menn í stjórn; Friðrik Arnarson, Einar Hafliðason og Jónínu Heiðveigu Gunnlaugsdóttur. Öll gáfu þau kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og voru endurkjörin við gífurleg fagnaðarlæti fundarmanna.

Stjórn félagsins skipa því eins og áður;

Jón Haraldur Sölvason (formaður), Einar Hafliðason (gjaldkeri), Ómar Hjalti Sölvason (meðstjórnandi), Jónína Heiðveig Gunnlaugsdóttir (ritari) og Friðrik Arnarson (varaformaður).

Kosið var í nefndir félagsins;

Sjoppunefnd: Einar Hafliðason, Jónína Heiðveig Gunnlaugsdóttir, Gylfi Hjálmarsson. Varamaður: Björn Júlíusson (sérstaklega á gangnaböllum).

Íþróttanefnd: Jónína Heiðveig Gunnlaugsdóttir, Orri Þórsson, Friðrik Arnarson, Jón Bjarki Hjálmarsson. Varamaður: Einar Hafliðason

Brennunefnd: Karl Ingi Atlason, Gunnar Kristinn Guðmundsson, Jón Haraldur Sölvason, Karl Heiðar Friðriksson, Bergþóra Sigtryggsdóttir. Varamaður: Einar Hafliðason.

Tvær tillögur voru samþykktar:

Lagt til að ekki verði innheimt árgjöld fyrir árið 2015.

Lagt til að félagið greiði æfingagjöld fyrir félagsmenn sem stunda frjálsar íþróttir og knattspyrnu undir handleiðslu menntaðs þjálfara. Upphæðin verði þó aldrei hærri en 15.000 kr. á ári fyrir félagsmann.

Ennfremur er stefnt á að endurtaka leikinn og halda bingó og Brúsmót í nafni félagsins næsta vetur.

Ýmislegt fleira var rætt á fundinum, meðal annars álegg á pítsur, öflun bingóvinninga og stóra sundskálamálið, en óþarfi er að fara nánar út í það hér.