Fréttir af aðalfundi Umf. Þ.Sv. 2014

Dagsetning birtingar: 21.4.2014 16:25:27

Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður hélt sinn 93. aðalfund á Rimum að kvöldi 16. apríl s.l. Mæting á fundinn var þokkaleg og annað árið í röð voru fundargestir fleiri en stjórnarmenn. Ýmis mál voru til umfjöllunar á fundinum eins og yfirleitt. Skýrsla stjórnar og ársreikningar voru samþykktir með handauppréttingu. Kosið var um tvo menn í stjórn; Jón Harald Sölvason og Herbert Hjálmarsson. Jón Haraldur gaf kost á sér áfram og var endurkjörinn en Herbert gaf ekki kost á sér, af þeirri furðulegu ástæðu að hann byggi ekki lengur í sveitarfélaginu. Ómar Hjalti Sölvason var kosinn í stjórn í hans stað með lófaklappi.

Stjórn félagsins skipa því

Jón Haraldur Sölvason, Einar Hafliðason, Ómar Hjalti Sölvason, Jónína Heiðveig Gunnlaugsdóttir og Friðrik Arnarson

Kosið var í nefndir félagsins;

Sjoppunefnd: Einar Hafliðason, Jónína Heiðveig Gunnlaugsdóttir, Gylfi Hjálmarsson

Íþróttanefnd: Jónína Heiðveig Gunnlaugsdóttir, Sigurlaug Hanna Hafliðadóttir, Friðrik Arnarson, Jón Bjarki Hjálmarsson, Jón Haraldur Sölvason

Brennunefnd: Karl Ingi Atlason, Gunnar Kristinn Guðmundsson, Jón Haraldur Sölvason, Karl Heiðar Friðriksson, Bergþóra Sigtryggsdóttir

Sjálfkjörinn í veitinganefnd annað árið í röð var Gunnar Kristinn Guðmundsson (óforml)

Þrjár tillögur voru samþykktar:

Lagt til að ekki verði innheimt árgjöld fyrir árið 2014.

Lagt til að félagið greiði æfingagjöld fyrir félagsmenn sem stunda frjálsar íþróttir og knattspyrnu undir handleiðslu menntaðs þjálfara. Upphæðin verði þó aldrei hærri en 15.000 kr. á ári fyrir félagsmann.

Lagt til að félagið greiði kostnað vegna þátttökugjalda í utandeild KDN sumarið 2014 fari svo að Umf. Þ.Sv. sendi lið til keppni, en leikmenn, sem taka þátt, standi sjálfir straum af öðrum kostnaði.

Ennfremur er stefnt á að endurtaka leikinn og halda bingó og Brúsmót í nafni félagsins næsta vetur.

Ýmislegt fleira var rætt á fundinum, meðal annars um stóra fótboltavallarsláttumálið, en óþarfi er að fara nánar út í það hér.