Fyrirlestrar á Hrafnagili fyrir íþróttafólk

Dagsetning birtingar: 26.11.2014 21:07:26

UMSE mun standa fyrir tveim fyrirlestrum á Hrafnagili þriðjudaginn 2. desember.

Fyrirlestrarnir eru ætlaðir íþróttafólki, 11 ára og eldri. Þeir fara fram í

Hrafnagilskóla og hefjast kl. 17:00 og 18:15. Stutt hlé verður á milli þeirra og boðið upp á léttar veitingar.

Ekkert þátttökugjald er að fyrirlestrinum og eru foreldrar sérstaklega velkomnir.

Heilbrigður lífsstíll

Kl. 17:00 fjallar Sonja Sif Jóhannsdóttir, íþróttafræðingur, um heilbrigðan lífsstíl:

• Mikilvægi þess að borða hollt og vel.

• Mikilvægi svefns.

• Mikilvægi hvíldar til að ná árangri í íþróttum og lifa heilbrigðu lífi.

• Mikilvægi vatnsneyslu.

• Muninn á orkudrykkjum og íþróttadrykkjum.

• Jákvæð hugsun.

Markmiðasetning

Kl. 18:15 fjallar Ellert Örn Erlingsson, íþróttasálfræðingur og forstöðumaður íþróttamála á Akureyri, um markmiðasetningu íþróttafólks:

• Hvað er markmiðssetning?

• Til hvers markmiðssetning?

• Árangursrík markmiðssetning!