Íþróttaspriklið hefst á ný!

Dagsetning birtingar: 27.9.2016 12:02:41

Íþróttaspriklið á Rimum hefur göngu sína að nýju þriðjudagskvöldið 4. október kl. 20:30. Sem fyrr stjórnar Sóla í Jörfatúni spriklinu. Við hvetjum konur og karla til að mæta á þriðjudagskvöldum í vetur og sprikla þar sér til ánægju og heilsubótar - frítt! Tímarnir verða blanda af einhvers konar upphitun, þrekstöðvum og leik t.d. blaki, bandý, körfubolta o.fl. Allir velkomnir.

Umf. Þorsteinn Svörfuður