Kjör íþróttamanns UMSE 2014 að Rimum

Dagsetning birtingar: 19.1.2015 17:53:39

Kjör íþróttamanns UMSE fer fram að Rimum í Svarfaðardal næsta fimmtudag, 22. janúar. Árið 2014 var gott íþróttaár á starfssvæði UMSE og munu um fimmtíu einstaklingar fá viðurkenningu að þessu sinni. Hápunkturinn að venju verður svo lýsing á kjöri íþróttamanns UMSE 2014. Tíu einstaklingar eru í kjörinu að þessu sinni, en það eru í stafrófsröð:

    • Andrea Björk Birkisdóttir, Skíðamaður UMSE 2014.

    • Anna Kristín Friðriksdóttir, Hestaíþróttamaður UMSE 2014.

    • Arnór Snær Guðmundsson, tilnefndur af stjórn UMSE fyrir góðan árangur í golfi.

    • Guðmundur Smári Daníelsson, Frjálsíþróttamaður UMSE 2014.

    • Haukur Gylfi Gíslason, Badmintonmaður UMSE 2014.

    • Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson, Sundmaður UMSE 2014.

    • Jón Elvar Hjörleifsson, Borðtennismaður UMSE 2014.

    • Ólöf María Einarsdóttir, Golfmaður UMSE 2014.

    • Sindri Ólafsson, Knattspyrnumaður UMSE 2014.

    • Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir, tilnefnd af stjórn UMSE fyrir góðan árangur í frjálsíþróttum.

Það eru stjórnir aðildarfélaga UMSE og stjórn og varastjórn UMSE, sem kjósa íþróttamanninn.