Knattspyrnumót UMSE 2016

Dagsetning birtingar: 29.8.2016 22:16:56

Knattspyrnunefnd UMSE hefur ákveðið að halda knattspyrnumót UMSE og Bústólpa á Árskógssvelli sunnudaginn 4. september kl. 14:00.

Aðalmarkmið mótsins er að börn og unglingar á svæðinu sem áhuga hafa á fótbolta komi saman, kynnist og skemmti sér.

Stefnt er að því að keppa í eftirfarandi flokkum ef næg þátttaka fæst (blönduð lið):

8. flokkur (Börn fædd 2010 og síðar). 5 manna bolti.

7. flokkur (Börn fædd 2008-2009). 5 manna bolti.

6. flokkur (Börn fædd 2006-2007). 5 manna bolti.

5. flokkur (Börn fædd 2004-2005). 7 manna bolti.

4. flokkur (Börn fædd 2002-2003). 7 manna bolti.

3. flokkur (Börn fædd 2000-2001). 7 manna bolti.

Mögulega þarf að setja saman einhverja flokka eftir skráningu.

Til að hægt sé að raða niður leikjum og ganga frá pöntun á viðurkenningum er mikilvægt að skráningar berist í síðasta lagi fimmtudaginn 1. september kl. 22 á netfangið elvaroli58@gmail.com

Í skráningunni þarf að koma fram hve mörg lið félagið sendir, í hvaða flokki þau keppa og fjöldi barna. Endilega hafið samband þó að það náist ekki í fullt lið. Markmiðið er að allir geti tekið þátt svo við munum reyna að koma öllum í lið.

Okkur langar að biðja ykkur, kæru viðtakendur, að koma þessum pósti áfram til þjálfara og annarra sem málið varðar. Við erum ekki með nettfang hjá öllum og treystum því á ykkur. Einnig væri gott að setja upplýsingar um mótið inn á heimasíður félaganna.

Hlökkum til að heyra frá ykkur,

Elvar Umf. Reyni, Einar Umf. Þorsteini Svörfuði og Jóhannes Gísli Umf. Smáranum,

Gott að muna:

Staðsetning: Árskógssvöllur

Tímasetning: Sunnudagurinn 4. september kl 14:00

Skráning: Í síðasta lagi fimmtudaginn 1. september kl. 22