Knattspyrnumót UMSE 26. ágúst 2015

Dagsetning birtingar: 13.8.2015 12:09:38

Knattspyrnunefnd UMSE hefur ákveðið að halda hið árlega UMSE mót í knattspyrnu á íþróttavöllunum við Hrafnagilsskóla miðvikudaginn 26. ágúst nk. kl. 17:00.

Aðalmarkmið mótsins er að börn og unglingar á svæðinu sem áhuga hafa á fótbolta komi saman, kynnist og skemmti sér.

Stefnt er að því að keppa í eftirfarandi flokkum ef næg þátttaka fæst (blönduð lið):

8. flokkur (Börn fædd 2009 og síðar). 5 manna bolti.

7. flokkur (Börn fædd 2007-2008). 5 manna bolti.

6. flokkur (Börn fædd 2005-2006). 5 manna bolti.

5. flokkur (Börn fædd 2003-2004). 7 manna bolti.

4. flokkur (Börn fædd 2001-2002). 7 manna bolti.

3. flokkur (Börn fædd 1999-2000). 7 manna bolti.

Umf. Þorsteinn Svörfuður stefnir á að senda lið til keppni á mótinu.