Þrettándabrenna Umf. Þ.Sv. 5. janúar 2019

Dagsetning birtingar: 1.1.2019 22:35:15

Laugardagskvöldið 5. janúar n.k. verður hin árlega þrettándabrenna Umf. Þ.Sv. haldin hjá Tunguréttinni eins og síðustu ár (ath. breytta dagsetningu). Kveikt verður í bálkestinum kl. 20:30. Björgunarsveitin verður með flugeldasýningu venju samkvæmt.

Hafi einhverjir áhuga á að styrkja flugeldasýninguna líkt og undanfarin ár og gera hana öflugri má leggja inn á 0177-26-576, kt. 560694-2969 í síðasta lagi 4. janúar. Ungmennafélagið gerir svo upp við Björgunarsveitina.

Eins má benda á að ef einhverjir vilja leggja til brennuefni á brennuna er það velkomið.

Hafa má samband við Kalla á Hóli (formann brennunefndar) út af því í síma 863-1537.

Fyrir hönd Umf. Þ.Sv.

Einar Hafliðason

gjaldkeri Umf. Þ.Sv.

kt. 560694-2969

reikningur 0177-26-576