Þrettándabrenna við Tungurétt

Dagsetning birtingar: 4.1.2018 08:42:34

Laugardagskvöldið 6. janúar verður hin árlega þrettándabrenna Umf. Þ.Sv. haldin hjá Tunguréttinni eins og síðustu ár.

Kveikt verður í bálkestinum kl. 20:30. Björgunarsveitin verður með flugeldasýningu venju samkvæmt.

Hafi einhverjir áhuga á að styrkja flugeldasýninguna líkt og undanfarin ár og gera hana öflugri má leggja inn á 0177-26-576, kt. 560694-2969 í síðasta lagi 5. janúar. Ungmennafélagið gerir svo upp við Björgunarsveitina.

Eins má benda á að ef einhverjir vilja leggja til brennuefni á brennuna er það velkomið.

Hafa má samband við Kalla á Hóli (formann brennunefndar) út af því í síma 863-1537.

Brennunefnd Umf. Þorsteins Svörfuðar