Umsóknarfrestur í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ

Dagsetning birtingar: 7.5.2015 09:55:48

Umsóknarfrestur til að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði Ungmennafélags Íslands hefur verið framlengdur til 15. maí. Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna inn á heimasíðu UMFÍ (www.umfi.is) undir Styrkir fyrir 15. maí.

Sjóðurinn veitir m.a.að styrki til félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi.

Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem gæti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild.

Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðnum. Sjóðsstjórn er heimilt að veita styrki úr sjóðnum að eigin frumkvæði til verkefna sem ekki teljast til árlega verkefna hreyfingarinnar.

Nánari upplýsingar eru gefnar á þjónustumiðstöð UMFÍ í síma 568-2929.

Framkvæmdastjóri UMSE veitir einnig upplýsingar um málið í síma 868-3820.

Stjórn Umf. Þorsteins Svörfuðar hvetur áhugasama til að kynna sér málið.