Undanfarin ár hefur staðið yfir vinna við gerð 100 ára afmælisrits Umf. Þorsteins Svörfuðar, líkt og áður hefur verið greint frá hér á heimasíðunni. Félaginu var hleypt af stokkunum á þriðja degi jóla árið 1921, sem þýðir að félagið átti 100 ára afmæli á þriðja degi jóla árið 2021. Af þessu tilefni ákvað stjórn félagsins á þeim tíma að varðveita hina merku sögu með því að standa að gerð afmælisrits.
Samið var við þau Margréti Guðmundsdóttur og Þórarinn Hjartarson frá Tjörn um að taka saman söguna og reyndist það mikið heillaskref. Sem betur fer er til mikið magn heimilda, t.a.m. handskrifaða félagsritið Árblik sem kom út frá stofnun félagsins og fram yfir miðja 20. öldina. Þá hafa fundargerðarbækur félagsins frá stofnun varðveist.
Ritið er nú tilbúið, ný komið úr prentun og hafa stjórnarmenn ungmennafélagsins tekið til við að dreifa ritinu endurgjaldslaust á öll heimili í Svarfaðardal síðustu daga. Stefnt er á að dreifa ritinu til núverandi og fyrrverandi félagsmanna innan sem utan stór Svarfaðardalssvæðisins. Þeir sem búsettir eru utan starfssvæðis félagsins en hafa áhuga á að fá afmælisrit geta lagt inn pöntun með því að senda póst á tsv@umse.is.
Stefnt er á að halda útgáfuhóf á Rimum þann 27. desember n.k., á 105 ára afmælisdegi félagsins og gera efni ritsins aðgengilegt hér á heimasíðu félagsins. Það verður nánar kynnt síðar.