Ferðastyrkir UMSE til íþróttamanna - umsóknarfrestur til 30. sept

Dagsetning birtingar: 18.9.2014 22:10:02

Sækja þarf um ferðastyrki fyrir íþróttaiðkendur til UMSE fyrir 30. september n.k..

Á heimasíðuinni er að finna upplýsingar um þessa styrki, vinnureglurnar og umsóknareyðublöð.

http://www.umse.is/styrkir

Nánar um styrkina:

Stjórnin veitir ferðastyrki til íþróttafólks innan UMSE vegna æfinga- og keppnisferða. Hægt er að sækja um fyrir einstaklinga eða hópa.

Stjórnin setur sér vinnureglur um þessa styrki og miðast þeir við fjárhag sambandsins að hverju sinni. Hver einstaklingur getur einungis fengið einn styrk á hverju ári. Íþróttafólk getur sótt sjálft um styrkinn til stjórnar, en umsóknina þarf að staðfesta af forráðamanni íþróttafélagsins. Einnig geta aðildarfélög sótt um styrki fyrir hönd iðkenda. Úthlutað er tvisar á ári, í júní og október. Umsóknarfrestur er til 31. maí og 30. september.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri UMSE.